RVK jólabrugg valin dós ársins 2025
RVK Jólabrugg frá RVK Bruggfélagi var nýlega valin besta dós í heimi fyrir árið 2025 af breska tímaritinu The Canmaker. Verðlaunin eru talin ein virtasta viðurkenning í heimi á sviði umbúðahönnunar og framleiðslu drykkjardjósa.
Útlit og hönnun á dósinni var í höndum Karlssonwilker hönnunarstofunnar í New York. Dósin er framleidd hjá Nomoq í Þýskalandi sem sérhæfir sig í að prenta á dósir fyrir smá og millistóra fremleiðendur. Dómnefnd The Canmager hrósaði dósinni sérstaklega fyrir glæsilegt útlit og hágæða prentun á einkennandi útliti dósa frá RVK Bruggfélagi.
RVK Jólabrugg hlaut einnig gullverðlaun í flokkunum Beverage Two Piece og silfurverðlaun í flokknum Decoration and Print Quality fyrir framúrskarandi hönnun og prentgæði.
Sala á RVK Jólabruggi hefst í verslunum ÁTVR fimmtudaginn 6. nóvember, en hún fæst einnig í bjórbúð RVK Bruggfélags í Tónabíói.
